Ég er staddur á ak. Vikingur var að halda Dr. Mister and
Mistah Handsome tónleika hérna ég fékk hlutverkið að keyra 12 manna
bíl með hljómsveitinni vinkonum þeirra og Adda exus. Þetta var
geggjuð ferð hingað sem tók 6 klst. útaf fullt af stoppum. Kynntist
liðinu slatta var ótrúlegt hversu flippaðir þeir eru. Síðan var
komið norður og farið beint í soundcheck svo opnaði ég
miðasöluna. Fyrst var grunnskólaball sem var frekar mikið
skull, það mættu 43. En það var allt í lagi Því forsalan gekk
geggjað vel á framhaldsskólaballið. Síðan var smá pása á milli
22:00 til 24:00 það var nýtt í drykkju hjá flestum.
Ég drakk akkurat ekkert, er að spá í að fá mér smá í
kvöld. Veit samt ekki með það. Ekki að nenna því
finnst oft mest töff liðið sem er ekki drekkandi. Þar
sem ég töff
þá er ég að spá í að ekki drekka. En svona
er þetta maður er á Ak. er þá ekki flest leifilegt ? ég fór
bara að sófa rétt áður en ballið var búið í gær. Var svo
þreyttur. Ég er búinn að fatta það að það er ekkert rosalega
gaman að vera fullur. Þess vegna er ég nánast hættur. Ég
dýrka alveg bjór fæ mér hann enn af og til. En
fyllerí......veistu ég nenni því bara ekki.... Hef ekki orðið
fullur síðan á bloodhound gang. Það var líka svo mikil
vitleysa.
Endilega commentið varðandi drykkju. Finnst ykkur gaman að vera
full og vitlaus eða er ekki bara skemmtilegra að vera
bara búinn að fá sér einn.
Ég sit núna á kaffi Amor er að spjalla við nýja
vinkonu mína Eygló hún er að leita af módelum fyrir Fordkeppnina.
Er að taka viðtöl við sætar stelpur, ég alveg nýt mín hérna í
hennar félagsskap.....og stelpnana sem koma í viðtöl. Þetta er
gaman hún er svo fersk. Hún er að reyna að plata mig
til að koma til Egilstaða í kvöld á tjúttið. Ég ætla að
vera hérna þangað til á morgun held ég. Við strákarnir Óli stóri,
Toggi, Jónas og Vikingur erum allavega saman. Ef þeim langar til
egilstaða þá er það alveg sport. Ég veit samt ekki.
Þetta er alveg frábært. Bara hérna til að slappa aðeins af.
gisti hjá Auði í nótt. Allt fullbókað á öllum hótelum...
Ég fékk hjónarúmið! hehe Auður og kallinn hefðu örugglega
verið þar... En ég pantaði það fyrst ! Komum hljómsveitinni í
flug áðan. Voru enn fullir ósofnir. Var frekar fyndið, síðan
var bíllinn gerður upptækur útaf því að það var enginn með
meirapróf sem betur fer var ég ekki tekinn á leiðinni hingað með 12
manns í bílnum. sem er skráður 14 manna. Frekar ólöglegur...
Set myndir inn þegar þær koma á www.flass.net eða www.sjallinn.is Var mjög gaman. Er
rólegt yfir hópnum þeim sem eru eftir.
En þetta roadtrip sem við fórum í hingað í gær er eitthvað sem
ég gleymi aldrei því þetta var alveg örugglega eitt það
skemmtilegasta sem ég hef gert. Gaman að sjá allt liðið sem var í
bílnum í brjáluðu stuði.... Jæjjja hugsa um að kíkja í sund eða
eitthvað. Þetta var svo skemmtilegt og vonandi heldur fjörið áfram
í kvöld. Ég efast ekki um það.