Við erum þeir sem foreldrar þínir vöruðu þig við!

Við erum þeir sem foreldrar þínir vöruðu þig við!

27.04.2007 12:06:19 / Aron Gold

Mannleigi Aron...

Nú heldur bréf dómnefndar áfram

Er komið var upp í bústað var gert eftirfarandi í réttri röð, létt af sér.... sett inn í ísskáp öl, tekið út úr ísskáp öl og stefnt var að taumlausri gleði. Þegar hér er komið eins og dómnefnd hefur þegar gefið stig fyrir er Fanney orðin svoldið full. Dómnefnd ásamt Dagný, Eyþóri, Viðari og Fanney skella sér í drykkjuleik að hætti Dómnefndar sem endaði í ósköpum fyrir dómnefnd jafnt sem aðra leikmenn. Þegar þessum leik líkur er starf dómnefndar farið að skerðast sökum inntöku áfengis. .....æjjj wow ég nenni ekki að skrifa um þetta meira er búinn að reyna að byrja 4 til 5 sinnum mómentið er búið

Dómnefnd þakkar fyrir góða keppni og Eyþór vinnur afþví að hann á afmæli.

Takk fyrir geggjaðan bústað og takk fyrir að nauðga mér ekki Dagný þó við höfum verið að deila rúmi, btw. allir sem lesa ég fékk ekki einu sinni kúr! Takk fyrir að vakna ekki þegar ég kom heim upp í bústað.

Nú tekur við létt spjall við Aron um hvernig gengur í kærustuleit

Ég heimsótti Aron Ólafs. hinn víðfræga á heimili hans, þegar ég kom að hurðinni þá var ég pínu stressaður því ég hafði heirt svo margt um hann. Ég skoðaði heimilisfangið einu sinni enn áður en ég dinglaði á bjölluna ég heirði í hundum inn gelta og hlaupa að hurðinni. Aron kom til dyra og hann var hlýr og þægilegur. Hann er ekki eins og ég hafði ímyndað mér hann. Aron bauð mér upp á kaffi sem hann var að hella upp á og sagði hundunum sínum að fara í burtu. Ég var pínu smeikur við þá og Aron skynjaði það. Hann bauð mér að setjast út í garð og ég þáði það. Aron er hófsemis maður og býr í einbýlishúsi í ártúni. Svo allt í einu afsakar hann sig því hann þarf að skreppa að hjálp til upp í Rauða kross og segir mér bara að hinkra. Ég nota tækifærið og skoða aðeins í kringum mig og sé að hann lifir huggulega

 

_________SAGA BLAÐAMANS HELDUR ÁFRAM SEINNA__________

 

Hvað er að frétta að stelpu málum hjá mér, það er nú bara þannig að ég er eiginlega bara búinn að vera tala við stelpur sem ég hef áður hitt einhvern tíman en ekkert svæsið að gerast þar. Það gengur pínu illa að ætla sér að fara deita stelpur og svona núna því ég er auðvitað að fara inn í prófaviku sem þíðir auðvitað bara það að ég er upp í skóla alltaf til 23 á kvöldin. Ég veit ekki nákvæmlega hvað ég vill, ég er með fyrsta stefnumótið í huganum það er sjúklega töff. Mig langar í On-Off takka á tilfinningar. Það væri svo þægilegt, þá gæti ég Off-að á stelpu sem ég hef haft áhuga á í mjög marga mánuði. Venjulegum kringumstæðum er gaman að vera skotinn en það er verra þegar stelpan ber engan hug til þín.  Maður veit ekkert hvað maður á að gera eða hvernig maður á að haga sér, þegar maður sér hana þá langar manni að knúsa hana eða eitthvað, en strax og maður ætlar að fara tala við hana þá gerir maður ekkert annað en að skjóta á hana. Þetta er eins og að vera í grunnskóla aftur ég verð bara svo óöruggur í kringum hana. Langar ekkert að vera skotinn í stelpu sem ekki hefur neinn þannig áhuga á mér. Hver kann að búa til svona On-Off takka ? Mig langar mest að hún fái aftur áhuga á mér. Á eftir því langar mig mest að vera vinur hennar...Því ekki nema ein stelpa hefur áður náð að halda áhuga mínum svona lengi. Er það ekki eitthvað ?

Kv. Aron Ólafs.

 

_______frásögn blaðamans heldur áfram ________________

Ég er búinn að vera hérna í 5 daga að bíða.... held að ég sé bara farinn..... Aron svarar ekki, veit ekki hvað er í gangi .... er þetta djók eða ekki ?

Fanney skrifaði
Takk fyrir þessa frásögn.. Hefði samt vilja heyra meira um bústaðinn.. Átti klárlega mörg stig inni, sérstaklega eftir traktora rallíið sem ég og Dagný tókum ásamt því að leysa deilu grunnskólabarna (ástarmálin að fara með þessi börn)... hehe... En annars takk fyrir frábæra helgi og gangi þér vel í prófum ;)
Aron Ólafs. skrifaði
Takk sömuleiðis Fanney mín... en ég var auðvitað ekki viðstaddur traktora rallýið þar sem ég við eiginlega skiptum um stað þegar þú varst búin að vera leysa ástardeilu krakkanna var ég að djamma með pabba stelpunnar...
sigga skrifaði
Frásöng blaðamansins lýsir þér svona nokkurveginn, gleymir þér stundum..en ég skal vera kærastan þín Aron minn:* (eins gott að þú gleymir mér ekki;)!)
Aron Ólafs. skrifaði
Ég gleymi þér aldrei sigga mín... auðvitað ekki
Rabbi skrifaði
má kærastan vera strákur? NEIII djók... hehe... just keep on blogging and the girl will come! later ;)
Dagný skrifaði
haha hvað helduru virkilega að ég hafi vaknað.. haha en ég vaknaði samt þegar þú komst inn skellandi öllum hurðunum ;) fórst allavega ekki hljóðlega um húsið.. en allavega það var drama hjá þessum 15 ára gellum og líka ekkert smá drama.. sem við Fanney leystum eins og við höfum aldrei gert neitt annað :) og líka þetta traktora rallíið þá má taka það fram að þetta var svona dót fyrir börn á aldrinum 1-2 ára en þú varst þá ennþá fyrir utan að spjalla við pabba gellunnar þvíég kom svo út að reykja og þá voruð þið í ykkar besta spjalli og svo hvarf Aron ;) en jámm.. ég átti von á því að þú myndir kúra oní mig hehe en ég vaknaði nú samt um daginn þá lá ég alveg þétt upp við þig enda í frekar litlu rúmi hehe ;) en gangi þér vel í prófunum og takk fyrir geggjaða ferð ;D
Aron Ólafs. skrifaði
Nei þú lágst þétt upp við mig því þú laðast að mér HAHAHA fattiði orða leikinn LAÐAST AÐ MÉR....
Dagný skrifaði
HAHAHAHAHAH...... allt í lagi, ég játa mig sigraða... á ég þá bara ekki að dumpa kallinum mínum og flytja heim til þín og byrja að búa til börn ;) HAHAH neeee samt ekki.. ég er of hamingjusöm til þess að gera það ;) kannski seinna:)
Aron Ólafs. skrifaði
börn róleg...... easy on it.... skulum byrja á því að kynnast....
- Lilja litla :* skrifaði
er eg ekki kærasta þin =(?
Sunnevavavavavva skrifaði
eg skal vera kærastan þin...er búin að fá leið á gaurum sem reyna of mikið....djísus...hvað segiru um það honiboni, greiði fyrir greiða ;D
Aron Ólafs. skrifaði
Jamm... varðandi þetta að reyna of mikið... þá held ég að besta leiðin sé bara að leifa hlutum að gerast...ekki flýja þá, og ekki endilega reyna að ýta á eftir þeim... það er bara synd hvað er oft erfitt að fylgja þessu
Dagný skrifaði
hahah til hvers að kynnast ;) djók... anywho hlakka til að sjá þig á ammælinu þínu ;D... en já það getur verið virkilega erfitt að fylgja þessu... en það er til hins betra held ég..

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Klukkan
Leitarbox

RSS tengill
Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti
Eyþor og Fanney
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 7 september